Ömurlegasta afmælisgjöf ævinnar

Ekki vil ég vera vanþakklát en því miður þá ræð ég bara engan veginn við mig núna. Málið er að í síðustu viku fékk ég eina þá ömurlegustu afmælisgjöf sem ég hef á ævi minni fengið. Ég er viss um að gefandinn hafði einungis gott í huga þegar hann valdi þetta handa mér en gjöfin féll síður en svo í kramið hjá afmælisbarninu – þótt hún sé kannski gagnleg. Og til að bæta gráu ofan á svart þá get ég ekki einu sinni skipt þessu.

 

Í byrjun janúar fagnaði ég stórafmæli, því stærsta hingað til. Ég er sko heldur betur orðin fullorðin og ætti því að vera búin að læra að vera þakklát fyrir allar óskir og gjafir sem mér berast. Og ég held að ég sé það yfirleitt en sumt er einfaldlega of skrýtið eða of óheppilegt til að maður sé ánægður og þakklátur. Já sumt er aðeins til þess fallið að stuða mann og gera mann óánægðan. Nákvæmlega þannig var þessi gjöf.

 

Vinir og vandamenn hafa margir hverjir verið yndislegir og fært mér fallegar gjafir og kveðjur. Sumir lögðu sig virkilega fram um að gleðja þetta fullorðna afmælisbarn og fyrir það er ég svo sannarlega þakklát. Enda er allt það sem fær mig til að brosa vel til þess fallið að hækka hamingjustuðul minn. Ég er nefnilega nokkuð upptekin af því að halda þessum stuðli mínum háum því þannig get ég víst fagnað hverju stórafmælinu á fætur öðru. Því sannað þykir að þeir sem eru hamingjusamir lifa lengur.

 

Þegar lítill hvítur kassi merktur mér barst inn um bréfalúguna færðist bros yfir varir mínar. Á kassanum stóð stórum bláum stöfum „Til hamingju með afmælið“. Spennandi að fá svona afmælisgjöf inn um lúguna. Brosið fraus þó hratt þegar ég sá bláu stafina neðst á kassanum. Var þessi pakki virkilega til mín? Af hverju er Blái naglinn að senda mér pakka?

 

Vonbrigðin þegar ég opnaði kassann voru mikil. Þar blasti hún við mér þessi ömurlega gjöf. Sú allra allra ömurlegasta – og það eru engar ýkjur! Í kassanum var nefnilega heimapróf til að prófa fyrir ósýnilegu blóði í saur. Já og risastór nagli. Ég fékk sem sagt kúkapróf í stórafmælisgjöf og lái mér hver sem vill að vera ekki í skýjunum með það. Það tekur alltaf aðeins á að eiga stórafmæli og fara yfir á næsta tug. Ég hef t.d. verið minnt á það að ég sé komin í seinni hálfleik. En þessi afmælisgjöf hreinlega drap niður alla gleði og mér leið eins og ég hefði fengið naglann í líkkistuna mína.

 

Eins mikið og ég er þakklát fyrir svona fólk sem stendur á bak við Bláa naglann þá verð ég segja að tímasetningin hjá þeim er ömurleg. Ekki senda fólki svona pakka þegar það stendur á slíkum tímamótum! Ef ég hefði til dæmis fengið þennan pakka þremur mánuðum seinna hefði mér eflaust liðið allt öðruvísi. Þegar pakkinn datt inn um lúguna, nokkrum dögum eftir afmælisdaginn var ég nýbúin að fagna því að fá að eldast, gleðjast með vinum mínum og hafa gaman. En síðast en ekki síst hafði mér tekist nokkuð vel upp með að sættast við þessa nýju aldurstölu mína.

 

Eflaust mun ég að lokum nota þetta kúkapróf, sem á að hjálpa til við greiningu á ristilkrabbameini. En það verður sko ekki fyrr en ég verð búin að jafna mig á þessari gjöf og því að Bláa naglanum tókst algjörlega að drepa niður þá stemningu sem hafði myndast hjá mér við þessi stóru tímamót. Ég var nefnilega ansi kát og sátt með þetta allt saman áður en Naglinn datt í hús.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En hvar fékkstu öll þessi ömulegu komment, ég get ekki séð eftir að athuga allar vefsíðurnar sem þú setur greinarnar inn... 

það hlýtur að vera á þínum persónulega tölvupósti, því ekkert kemur fram á öllum hinum síðunum ...

Brenda (IP-tala skráð) 23.1.2015 kl. 12:22

2 Smámynd: Jóna Ósk Pétursdóttir

Fékk send einkaskilaboð á Facebook, og síðan voru komment við deilingar á Facebook þar sem ég var tögguð inn. En auk þess var ógrynni skítakommenta við deilingar hjá alls konar fólki. Og ekki má gleyma kommentunum við pistilinn sjálfan sem ég set sjálf inn, þ.e. ekki "frétt" Smartlandsins.

Jóna Ósk Pétursdóttir, 25.1.2015 kl. 00:14

3 identicon

Alveg grátlegt hvað fólk getur lagst lágt cry og það útaf engu

Brenda (IP-tala skráð) 25.1.2015 kl. 09:49

4 Smámynd: Jóna Ósk Pétursdóttir

 Ísland í dag!

Jóna Ósk Pétursdóttir, 25.1.2015 kl. 13:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband